...í hita leiksins

...í hita leiksins

föstudagur, apríl 28, 2006

Nýtt heimili

Ég er flutt... flutt frá blogspot og komin yfir á blog.is, nánar til tekið http://www.kojo.blog.is

Sjáumst þar kæru lesendur, ef einhverjir eru!

KoJo

fimmtudagur, apríl 27, 2006

Já hér er ég!

Já kæru aðdáendur! Ég drattaðist til að borga net-reikninginn í dag og því er ég komin með netið í Grindavík eins og til hefur staðið lengi lengi. Ég ákvað því í tilefni af því, að setja inn nokkrar myndir af hundinum og kettinum, þeim Töru og Láka. Myndirnar eru frá ýmsum tímbabilum, og ég byrja á elstu myndunum.
Látið ykkur ekki bregða þó Tara, "hvolpurinn" okkar stækki svoldið á hverri mynd, hún er nefnilega alls ekkert löt við að stækka!
Hér kemur þetta:

laugardagur, febrúar 25, 2006

Síkát í góða veðrinu

Já sko, það er nú bara þannig, lesendur góðir, að þegar maður er með fjagra mánaða hvolp og lítinn kisustrák, þá er maður ekkert mikið að sitja við veraldarvefinn og blogga út og suður.
En jújú, ég bý ennþá í Grindavíkinni og það er bara svei mér þá déskoti ljúft. Gengur bara líka ljómandi vel í kvöldskólanum og allt í gúddí.
Hvolpurinn sem ég nefndi hér fyrr í pistli mínum heitir Tara, og er 3/4 belgískur Schieffer og 1/4 evrópskur Doberman. Þetta er lítill skæruliði sem nagar allt sem nagað verður og að sjálfsögðu tekur þetta svoldið í þolinmæðistaugarnar, en allt streðið er svo innilega þess virði. Set kannski inn einhverjar myndir við tækifæri en æstir lesendur verða bara að bíða rólegir.
Segi þetta gott í bili, góða veðrið varir aldrei lengi, svo ég er stokkin út!
Þangað til næst (sem er alls ekkert víst hvenær verður..)
Kolbrún Síkáta Jónsdóttir

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Jájájá

Jebb, mín er flutt í Grindavík.
Er í skólanum á fullu, og já, ég keyri á milli. Tekur mig 40 mínútur. Svipað og að keyra úr Grafarvogi niður í bæ á háannatíma, svona til viðmiðunar. Alveg hreint ótrúlegt hvað innfæddir borgarbúar mikla 52 kílómetra fyrir sér. Í þokkabót er ég á bíl sem eyðir svo litlu bensíni að ég held hann framleiði það frekar. Micran klikkar ekki.
Njálsgatan var semsagt ekki alveg að gera sig fyrir mig, sagði elskunni upp eins og hún lagði sig og kvaddi, alla fimmtán fermetrana. Já þetta er litskrúðugt líf og skemmtilegt, svei mér þá.
Íbúðin í tvöhundruðogfjörutíu Grindavík er eitthvað á milli 60 og 70 fermetrar, þriggja herbergja kot, sérdeilis kósí. Um mánaðamótin flytur einn lítill kútur inn til okkar, hann Láki litli. Hann er mjög loðinn og kelinn, enda ekki nema 8 vikna kisustrákur. Hann er víst hálfur skógarköttur, svo eitthvað á skottið á kauða eftir að blása út. Þetta verður áhugavert.

Ekki meira í bili, vinnan kallar.

fimmtudagur, desember 01, 2005

Sprellalive

Nei nei, ég er ekki dáin. Síður en svo, lifandi sem aldri fyrr.
Er bara lítið við tölvuna í tómstundum mínum, ótrúlegt en satt.
Vinn af krafti og fer svo aftur í skólann eftir áramót. Það verður sko tekið á því þar skal ég ykkur segja.
Ekki fleiri mikilmennskubrjálæðishugrenningar í bili.

Lifið heil.

þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Anusfruss í útvarpinu

Já, þetta var ég á XFM 91.9 í morgun..
Sófi, e-pillur og skítaklám
Djöfulsins klassík.

mánudagur, nóvember 07, 2005

Nasa á föstudagskvöldið

Misstress Barbara var ótrúleg.
Eitt það magnaðasta sem ég hef upplifað.
Lítið meira um það að segja svosem.