...í hita leiksins: Jarðgöng undir Kollufjall

...í hita leiksins

föstudagur, september 09, 2005

Jarðgöng undir Kollufjall

Bylgjan 09. september 17:43
Jarðgöng undir Kollufjall opnuð
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra opnaði jarðgöng undir Kollufjall við hátíðlega athöfn klukkan fjögur í dag. Göngin stytta leiðina milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar um 31 kílómetra en þau eru tæplega sex kílómetra löng. Áætlaður kostnaður við gerð ganganna er um fjórir milljarðar króna.

Hátt í 300 manns tóku þátt í Gangahlaupi sem ungmennafélögin Leiknir og Valur stóðu fyrir í gærkvöldi, í tilefni af opnun ganganna, en hlaupið var frá Fáskrúðsfirði til Reyðarfjarðar. Segir á vef Austurbyggðar að einn hundur hafi tekið þátt og líklegt sé að hann verði eini ferfætlingurinn sem hlotnast sá heiður að fara göngin á fjórum jafnfljótum.

Magnað.