...í hita leiksins: Upphaf endaloka

...í hita leiksins

fimmtudagur, september 22, 2005

Upphaf endaloka

Sko. Hér eftir verður breyting á gangi mála. Ég hef ekki skrifað mikið hér inn á þetta blessaða blogg í dálítinn tíma, sökum, ja, aðallega leti. Ég var að vísu netlaus á tímabili í nýju heimkynnum mínum við Njálsgötuna, en nú er ég er komin með netið heim og hef því enga afsökun fyrir að henda ekki inn nokkrum línum af og til.

Af mér er margt misskemmtilegt að frétta, aðallega mjög skemmtilegt þó. Ég er eins og mínir nánustu vita, er ég ennþá í Iðnskólanum í Reykjavík, og er þar að klára grafísku miðlunina. Ég vinn aðra hvora viku eftir skóla og alla föstudaga á prentstofu sem heitir Samskipti, þið getið lesið allt um það góða fyrirtæki á www.samskipti.is. Þar er ég að gera ýmislegt tengt prentun og frágangi t.d. gorma, skera, plasta, gata, prenta, hanna og skanna. Vægast sagt mjög skemmtilegur vinnustaður og ég er mjög ánægð og glöð að hafa fengið þessa vinnu. Alltaf eitthvað að gerast og aldrei lognmolla í húsakynnum okkar...

Efst á baugi hjá mér er að klára námið og taka sveinspróf einhverntímann eftir áramót. Ég er svosem ekkert að flýta mér í þessu öllu saman, bara tækla þetta hægt og rólega. Mig langar mikið að taka annað sérsvið þegar ég er búin með grafísku miðlunina. Sérsviðin eru sex talsins, bókband, prentun, grafísk miðlun, veftækni, ljósmyndun og nettækni, og öll hafa þau eitthvað sem ég girnist, þetta er allt eitthvað sem mig langar til að læra. Gæti svosem staðið uppí Hallgrímskirkju ár eftir ár með hverja húfuna á fætur annarri. Fjórfaldur sveinn, það væri ekki slæmt!

Ég flutti af Bergþórugötunni í sumar, en fór ekki langt. Fór nánar tiltekið í næstu götu, Njálsgötu. Þar leigi ég lítið kjallaraherbergi. Það er ekki nema 15 fermetrar, og mér finnst svoldið fyndið að vera með þráðlaust net í svona litlu rými.
Í herberginu er lítill eldhúskrókur, tvær eldavélahellur, örbylgjuofn, mini-bakaraofn, ísskápur og vaskur. Fyrir þetta er ég að borga 34 þúsund á mánuði. Hiti er innifalinn, en rafmagnið ekki. Ég fæ 8-10 þús í húsaleigubætur svo þetta er nú ekkert svo hræðilegt.

Launin mín eru alls ekki slæm, og verða alls ekki verri eftir sveinsprófið, þá ætla ég að fara að líta í kringum mig eftir stærra húsnæði. En þangað til ætla ég að hafa það kósí í litla herberginu mínu með gíturunum mínum, tölvunni og fermingarrúminu.

Þetta var byrjunin á endalokum bloggletinnar.
Þangað til næst - sem er ekki langt þangað til!
Hafið það gott.