...í hita leiksins: Tilkynningarskyldan...

...í hita leiksins

miðvikudagur, október 05, 2005

Tilkynningarskyldan...

Ég sit hérna uppí vinnu að bíða eftir að lappirnar á mér hreyfi sig sjálfar og hendurnar byrji að vinna. En fingurnir fara heldur eins og þruma um lyklaborðið og fæturnir ekkert á leiðinni að hreyfa sig neitt.
Ég fór vestur í Búðardal um helgina, og það var einu orði sagt æðislegt. Hef ekki farið þangað í hálft ár, en síðasta heimsóknin mín var einmitt á páskunum. Ég henti gíturunum, tölvunni og nokkrum fatalufsum í bílinn, og brunaði af stað. Hef aldrei keyrt þessa leið ein, en það var bara notalegt. Með besta ferðafélagann, iPodinn, í eyrunum, en skíthrædd um að hann yrði batteríislaus á miðri leið. Svo fór hinsvegar ekki.
Í Búðardal er margt búið að breytast. Til stendur að byggja 3 hús í götunni minni, þar sem áður var tún fyrir hestana hans Nonna Halls. Man þegar ég vaknaði einhverntímann við eitthvað fyrir utan gluggann hjá mér, þá voru 4 hestar í garðinum að gæða sér á grasinu okkar. Það verður sennilega ekkert svoleiðis héðan í frá. En það er kannski bara fínt, enda var svoldið vesen að koma þeim aftur inní girðingu :)
Mér til mikillar óhamingju er búið að fjarlægja Lettann "minn", og hann kominn á haugana. Ég veit ekki með ykkur, en ég neita að trúa því að hann hafi verið ógangfær! En ég viðurkenni að hann var orðinn ansi ryðgaður.. Ég er strax farin að sjá eftir að hafa ekki tekið fleiri myndir af honum þegar ég fór vestur þarna fyrir hálfu ári, en meðfylgjandi mynd er af elskunni minni, síðast þegar ég sá hann og snerti. Minningarathöfn verður um Lettann á GrandRokk í kvöld eftir vinnu. Eða sko, erfidrykkja. Aðallega drykkja samt.


Flottasta sjálfrennireið allra tíma. Lettinn minn heittelskaði. Fyrir aftan hann eru lóðirnar sem nýju húsin verða byggð á.

Ég var með helling af fötum í bílnum sem ég hef ekki pláss fyrir í litlu kytrunni minni niðrí bæ. Mamma tók sig til og þvoði öll fötin. ÖLL FÖTIN! Þetta voru 15 þvottavélar. Svo þurrkaði hún þetta, straujaði og braut saman. Öll föt sem ég á eru semsagt hrein. Þessi kona... Hún er alveg mögnuð. Talandi um mömmu mína, hún átti afmæli á mánudaginn 3.október, óska henni hér með opinberlega til hamingju með afmælið, þó ég hafi nú verið búin að knúsa kellinguna áður en ég lagði af stað suður á mánudagsmorguninn. Pabbi var nú heldur ekkert slor, hann skipti um bremsudisk á Benzanum og nú er ég ekki lengur tifandi tímasprengja í umferðinni! Ég skipti svo sjálf um dekk og verð því ekki eins og ósjálfbjarga skjálfandi lamb ef það springur hjá mér í vetur! Ónei, ég er sjálfstæð kona sem skiptir sjálf um dekk og hananú!
Laugardagskvöldið fór í gítarspil, elvislög og kojufyllerí með mömmu og pabba. Ómótstæðileg blanda.
Mikki tók vel á móti mér, held ég hafi aldrei séð neinn kött nudda sér eins mikið upp við eina manneskju og hann gerði við mig!
Með fullan bíl af hreinum fötum og bensíni, brunaði ég í bæinn og tók uppúr töskum og pokum. Ég fór og lét skoða bílinn, og fékk bráðabirgðaskoðun á hann. Hef mánuð til að kippa einhverjum smávandamálum í liðinn, og hafði hugsað mér að fara aftur vestur í þessum mánuði til að redda því.
Þetta var æðisleg helgi, alltaf ljúfsárt að koma vestur eftir svona langt hlé, en nú ætla ég að vera duglegri við að mæta á böll og aðra viðburði fyrir vestan.
Ég er búin að loka og skella í lás hérna uppí vinnu, og ætla nú að klára verkefnin sem eiga að vera tilbúin í fyrramálið.

Þangað til næst...